​Vinnslutillaga Svæðisskipulags Vestfjarða komin í Skipulagsgátt

Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða samþykkti á fundi þann 26. maí s.l. efni vinnslutillögu Svæðisskipulags Vestfjarða 2026-2050. Vinnslutillagan byggir á lýsingu svæðisskipulagsins sem mótuð var á síðasta ári í samráði við sveitarfélög og íbúa á Vestfjörðum og birt var í árslok með þeirri framtíðarmynd að íbúum á Vestfjörðum fjölgi og verði að lágmarki 11.000 manns árið 2050.
Með vinnslutillögu er svæðisskipulagsnefndin að leggja fram tillögu um hvernig endanleg svæðisskipulagstillaga geti litið út á næsta ári, varðandi framtíðarsýn og sameiginlega stefnu sveitarfélaga á Vestfjörðum til ársins 2050. Í henni birtist umfjöllun um fimm málefnasvið; náttúru og auðlindir, grunnkerfi, samfélagsauð, atvinnu og nýsköpun og menningarauð. Fjallað er um hvernig mæta má þeim áskorunum sem samfélög á Vestfjörðum þurfa að takast á við næsta aldarfjórðung, svo ná megi takmarki um fjölgun íbúa sem byggir á öflugu atvinnulífi og samfélagi.
Á samfélagssviðinu eru helstu áskoranirnar húsnæði, aldurssamsetning, inngilding nýrra íbúa, lýðheilsa og sjálfsmynd. Í atvinnumálunum varða áskoranirnar samkeppnisstöðu atvinnulífs og nýsköpunarumhverfi. Í umhverfismálum varða þær loftlagsbreytingar og að finna jafnvægi milli nýtingar og verndar og í innviðamálum eru það öflugar samgöngur, orkumál og fjarskipti og efling samstarfs sveitarfélaga á Vestfjörðum.
Tillagan verður opin til umsagnar hér í Skipulagsgátt til 20. ágúst n.k. og þar er einnig að finna stöðumatsskýrslu vinnslutillögu.


Comments

Skildu eftir svar

Discover more from Árneshreppur

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading