Fundarboð.

Fundur er boðaður í hreppsnefnd Árneshrepps, miðvikudaginn 2.júlí 2025 kl. 14:00.  Fundurinn verður haldinn á skrifstofu hreppsins í Norðurfirði.

Dagskrá;

  1. Sorpmál, samantekt varðandi málið.  Hjörleifur Finnsson kemur á fjarfund kl. 14:00. Einnig fjallað um væntanlega heimsókn frá Sorpsamlagi Strandasýslu síðar í vikunni. 
  2. Samvinna við Orkubú Vestfjarða varðandi lagningu þriggjafasa strengs og ljósleiðara í sumar. 
  3. Vega- og samgöngumál, slitlag, bílateljarar, heflun og fleira.
  4. Sjóvörn í Djúpavík, framkvæmdaleyfi.
  5. Finnbogastaðaskóli, staðan mála og framhaldið.
  6. Staðan á Melarétt, finna smiði til viðgerðar. 

Norðurfirði 30. júní 2025,
Eva Sigurbjörnsdóttir,
oddviti Árneshrepps. 


Comments

Skildu eftir svar

Discover more from Árneshreppur

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading