Hótel Djúpavík

Hótelið á Djúpavík er fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið starfandi frá árinu 1985, þegar Eva Sigurbjörnsdóttir og Ásbjörn Þorgilsson fluttu í þorpið. Hótelið er rekið í gamla kvennabragganum sem hýsti síldarstúlkurnar á síldarárunum.

Gamli tíminn skín í gegn og hefur fjölskyldan kappkostað við að hafa hótelið sem heimilislegast.​ Hægt er að fá gistingu í þremur húsum en eitt húsanna, Álfasteinn, er leigt út sem sumarhús sem er kjörið fyrir vinahópa og fjölskyldur.