​Tenging Hvalárvirkjunar – Kynning á niðurstöðum valkostagreiningar

Heil og sæl,

Í kjölfar vinnustofa í janúar þá vann Landsnet úr hugmyndum um valkosti sem þar komu fram.

Nú liggja niðurstöður valkostgreiningar fyrir og verður matsáætlun, ásamt valkostagreiningu, send til Skipulagsstofnunar í yfirlestur á næstu dögum.

Því boðum við til kynninga á matsáætluninni ásamt  niðurstöðum valkostagreiningarinnar, á eftirfarandi dagsetningum og staðsetningum:

  • 3. júní kl. 17 á Café Riis – Pakkhúsið Hólmavík
    • Þessi kynning er hugsuð fyrir verkefnaráð, en hún er einnig opin almenningi sem og landeigendum og hagaðilum á svæðinu sem kjósa að mæta þangað.
  • 5. júní kl. 17 á Nordica Hótel Reykjavík
    • Þessi kynning er hugsuð fyrir landeigendur en er einnig opin fyrir þau sem eru í verkefnaráði og sjá sér ekki fært að mæta á Hólmavík.

Boðið verður upp á fjarfund þann 5. júní. 

Verkefnaráðið tók vel í að hafa vinnustofuna á Hótel Laugarhóli opna fyrir áhugasömum aðilum. Okkur fannst það ganga vel og ákváðum við því að hafa sama fyrirkomulag og á vinnustofum, þ.e. að bjóða áhugasömum aðilum á svæðinu að mæta kynningu með verkefnaráði á Hólmavík. Að sama skapi geta meðlimir verkefnaráðs sem komast ekki í Hólmavík mætt í Reykjavík.

Sveitarfélögin mega því gjarnan birta á sínum miðlum tímasetningar kynningarfundanna.

Að sjálfsögðu verður heitt á könnunni og léttar veitingar í boði.

Þið megið endilega staðfesta móttöku ásamt upplýsingum um hvort þið komið á kynningarfundinn.

Kærar kveðjur,
Anna Sigga Lúðvíksdóttir
Verkefnastjóri undirbúnings fjárfestingaverka / Project Planning
​Landsneti ​


Comments

Leave a Reply

Discover more from Árneshreppur

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading