Fyrir dyrum stendur endurskoðun á Aðalskipulagi Árneshrepps, núverandi skipulag (t.o.m. 2025) gildir þó þar til nýtt aðalskipulag tekur gildi. Þetta er auðvitað heilmikið mál þó að sveitarfélagið sé bæði fámennt og dreifbýlt. En núgildandi aðalskipulag er orðið barn síns tíma og þarf nauðsynlega að taka breytingum til nýrri skipulagsviðhorfa.
Hægt er að lesa og skoða aðalskipulag inni á vef Skipulagsstofnunar og hreppsnefnd hvetur íbúa og landeigendur til þess að skoða það og koma með tillögur að breytingum eða umbótum á skipulaginu til hreppsnefndar. Best væri að fá slíkar tillögur í tölvupósti. Í tilefni þess að þessi vinna er að fara af stað hefur komið til tals innan hreppsnefndar hvort ekki sé rétt að láta hnitsetja legu jarða í sveitarfélaginu. Gert er ráð fyrir að Árneshreppur muni láta hnitsetja þær jarðir sem sveitarfélagið á. Þetta er að sjálfsögðu algerlega háð vilja bænda/landeigenda sjálfra og ennfremur væri sá kostnaður sem af þessu hlýst þeirra að greiða. Hjá Þjóðskrá Íslands er hægt að finna leiðbeiningar varðandi hnitsetningar og ýmis fyrirtæki sjá um slíka þjónustu, s.s. Landlínur ehf, Borgarnesi, Landmótun sf. og Loftmyndir ehf, Reykjavík. Með breyttum tímum getur svona framkvæmd verið mjög af hinu góða og myndi koma í veg fyrir óvissu varðandi landamerki. Nánari upplýsingar varðandi þetta mál er hægt að fá hjá oddviti eða öðrum hreppsnefndarmönnum. Heppilegt væri ef hægt væri að fara af stað með þetta verkefni strax í vor 2025, samtímis því að farið er í vinnu við endurnýjun á aðalskipulagi Árneshrepp og ef um er að ræða breytingar á deiliskipulagi.
Norðurfirði 16.febrúar 2025,
Eva Sigurbjörnsdóttir oddviti.


Leave a Reply