Landsnet býður í vinnustofur valkostagreiningar vegna tengingu Hvalárvirkjunar, tvær vinnustofur verða í boði og eru þær á eftirfarandi dagsetningum og staðsetningum:
- 28. janúar kl. 16-19 – Hótel Laugarhóll – Þessi vinnustofa er hugsuð fyrirverkefnaráð en hún verður einnig opin almenningi sem og landeigendum og hagaðilum á svæðinu sem kjósa að mæta þangað.
- Léttar veitingar verða í boði á meðan vinnustofan er í gangi og verður boðið upp á kvöldmat að vinnustofu lokinni.
- 30. janúar kl. 17-20 – Hótel Nordica – Þessi vinnustofa er hugsuð fyrir landeigendur en verður einnig opin fyrir þau sem eru í verkefnaráði og sjá sér ekki fært að mæta á Hótel Laugarhól.
- Léttar veitingar verða í boði á meðan vinnustofan er í gangi.
Þar sem að þetta eru vinnustofur verður ekki boðið upp á fjarfund og því hvetjum við ykkur til þess að mæta á vinnustofurnar. Það er gott að vita áætlaðan fjölda þátttakenda og því langar mig að biðja ykkur um staðfesta hvort að þið mætið á fundinn. Það er sérstaklega mikilvægt að fá áætlaðan fjölda sem mætir á Hótel Laugarhól til að geta áætlað fjöldann sem verður í kvöldmat.
Vinsamlegast skráið ykkur með senda póst á hl1mi1@landsnet.is, með upplýsingum um á hvaða vinnustofu þið mætið, ef þið mætið á Laugarhól, vinsamlegast takið fram hvort þeginn verði kvöldverður.
Vefsvæði verkefnisins er komið í loftið og er þetta slóðin á það:
https://landsnet.is/framkvaemdir/hl1
Drög að dagskrá er eftirfarandi:
- Framsaga frá Landsneti og VSÓ Ráðgjöf
- Markmið framkvæmdar – upprifjun
- Upprifjun frá SVÓT greiningu 2019 – helstu niðurstöður
- Tilgangur valkostagreiningar og tenging við umhverfismatsferlið
- Fyrirkomulag vinnustofu
- Vinnustofa – fyrri hluti
- Kaffipása
- Vinnustofa – Seinni hluti
- Samantekt í lokin og næstu skref


Leave a Reply