Höfrungar og kvefpest

Bréf frá Steingrímsfirði var birt í Norðanfara þann 27. september 1866 en bréfið var ritað 20. júní 1866. Þar segir ónefndur bréfritari að einstök harðindi hafi verið þá um vorið, með „grimmdarfrosti, hríðum og jarðbönum svo útigangspeningi varð að gefa hey, fram yfir fardaga“. 

Einnig segir bréfritari að hafís hafi komið í alla firði á Þorranum svo enginn hafi komist á sjó. Á sama tíma hafi 59 höfrungar verið drepnir á Kleifum „í netlögum, bæði með skutlum og nótum“ og með sama móti hafi 120 höfrungar verið drepnir í Bjarnarfirði. Tveir hvalir voru járnaðir í Veiðleysufirði og náðust þeir báðir og voru þeir „sagðaðir upp á Kambi í Árneshreppi“. 

Í bréfi þessu er sagt að um og eftir Hvítasunnu hafi geysað kvefpest í Strandasýslu sem hafi dregið 20 Árneshreppsbúa til dauða.


Comments

Leave a Reply

Discover more from Árneshreppur

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading