Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps

Félagsþjónustan hefur umsjón með barnavernd, heimaþjónustu, málefnum eldri borgara og  fatlaðra, félagslegri ráðgjöf, fjárhagsaðstoð og sérstökum húsnæðisstuðningi í sveitarfélögunum Árneshreppi, Kaldrananeshreppi, Reykhólahreppi og Strandabyggð. 

​Félagsmálastjóri Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps er  Soffía Guðrún Guðmundsdóttir, felagsmalastjori@strandabyggd.is. Ráðgjafi  félagsþjónustunnar er Hlíf Hrólfsdóttir, hlifh@strandabyggd.is, sem leysir af Hjördísi Hjörleifsdóttur í fæðingarorlofi frá 1. ágúst 2023 – 1. ágúst 2024.

Skrifstofa Félagsþjónustunnar er  á Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík og er opin alla virka daga frá 8-15. Sími félagsþjónustunnar er 451-3510.
Opnunartími á Reykhólum er á þriðjudögum frá 10-15 á skrifstofu sveitarfélagsins Maríutröð 5a. 


Comments

Leave a Reply

Discover more from Árneshreppur

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading