TILKYNNING FRÁ HREPPSNEFND ÁRNESHREPPS:

Hreppsnefnd Árneshrepps ákvað á fundi sínum 9. ágúst 2023 að senda frá sér eftirfarandi ályktun;

Mikil umræða hefur átt sér stað um sameiningu sveitarfélaga síðustu ár. Ýmsir möguleikar hafa verið skoðaðir sem þó hafa ekki enn leitt til niðurstöðu í stærra samhengi. Vegna fámennis sveitarfélagsins hefur Árneshreppur ekki haft frumkvæði að viðræðum við önnur sveitarfélög.  Hreppsnefnd Árneshrepps samþykkti einróma á fundi sínum að lýsa yfir vilja til viðræðna við önnur sveitarfélög og jafnframt óska eftir að fá að fylgjast með umræðum í nágrannasveitarfélögum.  


Norðurfirði 13. ágúst 2023,
fyrir hönd hreppsnefndar,
Eva Sigurbjörnsdóttir,
oddviti Árneshrepps. 


Comments

Leave a Reply

Discover more from Árneshreppur

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading