Auglýsing um skipulag

Hreppsnefnd Árneshrepps samþykkti á fundi sínum 29. apríl 2026 að kynna eftirfarandi vinnslutillögur samhliða:

Vinnslutillaga að breytingu á aðalskipulagi Árneshrepps 2005-2025 vegna Hvalárvirkjunar í Ófeigsfirði.

Aðalskipulagsbreytingin tekur til meginframkvæmdar Hvalárvirkjunar og tengdra framkvæmda. Vinnslutillagan ásamt umhverfismati áætlunar er til kynningar skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er aðgengileg í Skipulagsgátt (skipulagsgatt.is), mál nr. 415/2026. https://skipulagsgatt.is/issues/2026/415

Vinnslutillaga að deiliskipulagi Hvalárvirkjunar í Ófeigsfirði.

Deiliskipulagið tekur til framkvæmdasvæðis Hvalárvirkjunar í Ófeigsfirði og Ófeigsfjarðarheiði. Nýtt deiliskipulag mun leysa af hólmi gildandi deiliskipulag Hvalárvirkjunar vegna rannsókna sem fellur úr gildi með nýju deiliskipulagi Hvalárvirkjunar. Vinnslutillagan er til kynningar skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er aðgengileg í Skipulagsgátt (skipulagsgatt.is), mál nr. 534/2026. https://skipulagsgatt.is/issues/2026/534

Ofangreindar vinnslutillögur eru til kynningar frá 5. maí til 16. júní 2026 og er hægt að koma á framfæri skriflegum athugasemdum í Skipulagsgátt undir viðkomandi málum til og með 16. júní 2026.

f.h. Árneshrepps,

Hlynur Torfi Torfason 

skipulagsfulltrúi.


Comments

Leave a Reply

Discover more from Árneshreppur

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading