.
Fundur er boðaður í hreppsnefnd Árneshrepps miðvikudaginn 29. apríl kl. 14:00. Fundurinn verður haldinn á skrifstofu hreppsins í Norðurfirði.
Dagskrá:
- Ársreikningar fyrir árið 2025. Halldóra hjá Kpmg verður með á fundinum.
- Gisting í Finnbogastaðaskóla í sumar; strandveiðisjómenn, 6 menn við kirkjuna og fleira varðandi nýtingu/útleigu á skólanum.
- Fundargerð skipulags-, bygginga-, húsnæðis- og hafnarnefndar frá 24.mars 2026. Tekin til umfjöllunar.
- Slit á Byggðasamlagi Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks.
- Fundur í verkefnisstjórn Áfram Árneshreppur. Lagt fram til kynningar.
- Póstur frá Þjóðskrá vegna sveitarstjórnakosninga.
- Tæming rotþróa á árinu, fara yfir kostnað frá síðustu hreinsun.
- Sorphirðudagatal fyrir árið 2026.
- Úrgangsráð Vestfjarða, fundargerð 22.apríl 2026.
- Skógræktarfélag Íslands, ályktun fulltrúafundar.
- Málefni Norðurfjarðarhafnar, samningar við landeigendur, betri frágangur og fleira.
- Önnur mál.
Norðurfirði 27. apríl 2026,
Eva Sigurbjörnsdóttir
oddviti Árneshrepps.


Leave a Reply