Úrslit kosninga vegna sameiningar Árneshrepps og Kaldrananeshrepps

Niðurstöður íbúakosninga um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps  

Lokadagur íbúakosninga um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps var í dag og atkvæði hafa verið talin.


Í Árneshreppi voru 54 á kjörskrá.
Alls greiddu 44 atkvæði eða 81,48%.

25 sögðu já eða 56,81% greiddra atkvæða, 18 sögðu nei eða 40,90%, 1 seðill var auður.

Í Kaldrananeshreppi voru 95 á kjörskrá.
Alls greiddu 56 atkvæði eða 58,94%.
41 sögðu já eða 73,21%, 12 sögðu nei eða 21,42%, 3 seðlar voru ógildir. 

Niðurstaðan er því sú að sameining var samþykkt í báðum sveitafélögunum.

Sameiginleg kjörstjórn Árneshrepps og Kaldrananeshrepps.


Comments

Leave a Reply

Discover more from Árneshreppur

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading