Íbúakosningar um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps

Sveitarstjórnir Árneshrepps og Kaldrananeshrepps hafa samþykkt að láta fara fram íbúakosningu um tillögu um sameiningu sveitarfélaganna dagana 14.-28. mars nk.

Um hvað er kosið?

Kosið er um tillögu um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps. Samstarfsnefnd um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps hefur lagt fram álit sitt og helstu forsendur til umræðu í sveitarstjórnum samkvæmt 2. mgr. 119. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Hverjir mega kjósa?

Rétt til þátttöku í íbúakosningu eiga:

  1. íslenskir, danskir, finnskir, sænskir eða norskir ríkisborgarar sem náð hafa 16 ára aldri á lokadegi atkvæðagreiðslu og eiga skráð lögheimili í því sveitarfélagi þar sem íbúakosning fer fram á hádegi 22 dögum áður en atkvæðagreiðsla hefst.
  2. erlendir ríkisborgarar, sem hafa átt skráð lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir lokadag atkvæðagreiðslu, og uppfylla að öðru leyti skilyrði fyrsta töluliðar.

Kjörskrá er gefin út 20 dögum áður en kosning á að hefjast og miðast við búsetu í viðkomandi sveitarfélagi á hádegi 22 dögum fyrir upphaf atkvæðagreiðslu.

Eftir að kjörskrá hefur verið gefin út er hægt að sjá hvort og hvar kjósandi getur kosið á vef Þjóðskrár; https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/.

Hvernig er kosið?

Hægt er að kjósa á skrifstofum sveitarfélaganna á reglulegum opnunartíma þeirra, á kjörstöðum á opnunartíma þeirra á tímabilinu eða með póstatkvæðagreiðslu.

Í Árneshreppi:

Skrifstofa Árneshrepps  er opin á virkum dögum frá kl. 13:00 til 17:00. Að auki verður kjörstaður opinn í Félagsheimilinu í Árnesi sem hér segir:

  • Laugardaginn 14. mars frá kl. 12:00 – 14:00
  • Laugardaginn 28. mars frá kl. 12:00 – 16:00.

Í Kaldrananeshreppi:

Opnunartími skrifstofu Kaldrananeshrepps er mánudaga til  fimmtudaga frá kl. 09:00 til 16:00 og föstudaga frá kl. 09:00 til 13:00. Að auki verður kjörstaður opinn í Grunnskóla Drangsness sem hér segir:

  • Laugardaginn 14. mars frá kl. 12:00 til 14:00
  • Laugardaginn 21. mars frá kl. 12:00 til 14:00
  • Laugardaginn 28. mars frá kl. 10:00 til 16:00.

Póstatkvæðagreiðsla

Þeir sem ekki eiga þess kost að mæta á kjörstað geta greitt atkvæði í póstkosningu á tímabilinu 14. til 28. mars. Atkvæðagreiðsla með pósti fer þannig fram að kjósandi óskar eftir að fá kjörgögn ásamt leiðbeiningum um skil send til sín í pósti eða tölvupósti. Kjósandi þarf svo að koma atkvæði sínu í hendur kjörstjórnar fyrir lokun kjörstaða kl. 16:00 þann 28. mars nk.

Til að óska eftir kjörgögnum þarf að send senda tölvupóst á með nafni og kennitölu á drangsnes@drangsnes.is.

Álit samstarfsnefndar

Samstarfsnefnd hefur sent frá sér svohljóðandi álit:

„Kröfur til þjónustu sveitarfélaga fara sífellt vaxandi sem og þrýstingur á að lítil sveitarfélög sameinist öðrum með það að markmiði að tryggja þjónustu við íbúa. Á sama tíma óttast íbúar smærri sveitarfélaga það að missa nærþjónustu sem er þeim mikilvæg við sameiningu við stærri sveitarfélög og áhrif á ákvarðanir sem varða þeirra nánasta umhverfi. 

Samstarfsnefnd telur að sameining Árneshrepps og Kaldrananeshrepps geti orðið til þess að styrkja samfélagið og tryggja íbúum lögbundna þjónustu án þess að íbúar þurfi að afsala sér áhrifum eða nærþjónustu. Sameinað sveitarfélag yrði fjárhagslega vel í stakk búið til að veita lögbundna þjónustu og sinna faglegri stjórnsýslu.

Það er því samdóma álit samstarfsnefndar að það sé vænlegur kostur fyrir íbúa Árneshrepps og Kaldrananeshrepps að taka höndum saman og sameina sveitarfélögin.

Bæði sveitarfélög eru vel stæð fjárhagslega. Sameining myndi hafa jákvæð áhrif á fjárhag og fjárfestingargeta sameinaðs sveitarfélags yrði meiri en sveitarfélaganna hvors í sínu lagi.  Áætlað er að árleg jöfnunarframlög muni hækka um 12-15 m.kr. við sameiningu, auk þess sem sameinað sveitarfélag fengi um 200 m.kr. í sérstök sameiningarframlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á næstu sjö árum.

Samstarfsnefnd álítur að sameining Árneshrepps og Kaldrananeshrepps sé í samræmi við markmið stjórnvalda um eflingu sveitarstjórnarstigsins og muni tryggja íbúum sveitarfélaganna skjól fyrir kröfum um frekari sameiningar í nánustu framtíð“.

Vilji samstarfsnefndar um framtíðarsýn

Samstarfsnefnd einnig sett fram hugmyndir sínar um það hvernig stjórnsýslu og þjónustu yrði háttað í sameinuðu sveitarfélagi. Nefndin leggur áherslu á að um sameiningu á jafnræðisgrundvelli væri að ræða en ekki yfirtöku annars sveitarfélagsins á hinu.

Heimstjórn fyrir Árneshrepp

Samstarfsnefnd telur það forsendu þess að sameining sveitarfélaganna verði farsæl, að íbúum verði áfram tryggð sú þjónusta sem þeir njóta og áhrif á nærumhverfi sitt. Samstarfsnefnd leggur til að sett verði ákvæði í samþykkt sameinaðs sveitarfélags um heimastjórn fyrir svæðið sem fái víðtækar heimildir til ákvörðunartöku um málefni sem varða íbúa þess sérstaklega og eignir sameinaðs sveitarfélags í þeirra nærumhverfi.

Skólamál

Samstarfsnefnd sér fyrir sér að Grunnskóli Drangsness taki yfir þjónustu við íbúa Árneshrepps og að skólasel verði áfram rekið í Finnbogastaðaskóla fyrir þá nemendur sem búsettir eru á svæðinu. Jafnframt er gengið út frá því að nemendum og starfsfólki verði gefið tækifæri til að tengjast skólasamfélaginu á Drangsnesi eins og frekast er unnt.

Þjónusta í nærumhverfi

Samstarfsnefnd leggur til að íbúum verði tryggð, eftir fremsta megni, þjónusta í nærumhverfi með rafrænum hætti í íbúagátt. Skrifstofurými verði til staðar fyrir heimastjórn í Árneshreppi og viðvera fulltrúa sveitarfélagsins eftir því sem við á.

Jöfn tækifæri til þátttöku í sveitarstjórn og nefndum

Samstarfsnefnd leggur áherslu á að öllum íbúum sameinaðs sveitarfélags verði gefinn kostur á virkri þátttöku í málefnum sveitarfélagsins þ.m.t. setu í sveitarstjórn og nefndum með víðtækum heimildum til nýtingar fjarfundarbúnaðar og aðstöðu til fjarfunda á starfsstöðvum sveitarfélagsins. 

Áskoranir

Að mati samstarfsnefndar lúta áskoranir sameinaðs sveitarfélags fyrst og fremst að því að afla fylgis við bættar vegasamgöngur í sveitarfélaginu með uppbyggingu vega, endurnýjun brúa og tryggingu fyrir reglubundnum snjómokstri þegar hans er þörf. Góðir innviðir og samgöngur eru frumskilyrði fyrir atvinnuuppbyggingu og aukinni byggðarfestu á svæðinu. Í þeirri hagsmunagæslu telur samstarfsnefnd að sameinað sveitarfélag standi betur að vígi en í núverandi sveitarfélagaskipan.

Ítarefni:


Comments

Leave a Reply

Discover more from Árneshreppur

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading