HSS sjálfbærnimat vegna Hvalárvirkjunar opið til umsagnar

Opið umsagnarferli stendur nú yfir um niðurstöður HSS sjálfbærnimats, sem framkvæmt hefur verið á undirbúningsstigi Hvalárvirkjunar. Niðurstöður matsskýrslunnar eru aðgengilegar öllum á vefsíðu framkvæmdaaðilans, VesturVerks, undir flipanum „Hvalárvirkjun“ og stendur umsagnartíminn yfir til 17. október næstkomandi.

Haustið 2024 framkvæmdu matsmenn á vegum HSA samtakanna um sjálfbæra vatnsorku (Hydropower Sustainability Alliance) úttekt á undirbúningsstigi Hvalárvirkjunar. Matið er gert í samræmi við alþjóðlega HSS staðalinn (Hydropower Sustainability Standard) og fól í sér umfangsmikla gagnaöflun, viðtöl við ólíka hagaðila og vettvangsferð á fyrirhugað virkjunarsvæði. 

Hagaðilar og almenningur geta kynnt sér niðurstöður matsins og sent inn athugasemdir en matsskýrslan, bæði á íslensku og ensku, er aðgengileg á vefsíðu VesturVerks. 

Í kjölfar umsagnarferlis fara matsmenn yfir innsendar athugasemdir og gefa út lokaútgáfu matsskýrslunnar.

Hér má nálgast hlekki í upplýsingasíðurnar þar sem einnig er að finna hlekk í umsagnakerfi HSA samtakanna.

Íslenska: HSS sjálfbærnimat
Enska: Hydropower Sustainability Standard Assessment

Tekið skal fram að ef misræmi er á milli íslensku og ensku útgáfu matsskýrslunnar þá gildir enski textinn þar sem hann er frumtexti skýrslunnar.


Comments

Skildu eftir svar

Discover more from Árneshreppur

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading