Fundarboð

Fundur er boðaður í hreppsnefnd Árneshrepps miðvikudaginn 27. nóvember 2024.  Fundurinn verður haldinn  á skrifstofu hreppsins í Norðurfirði og hefst kl. 14:00.

Dagskrá fundarins;

  1. Viðauki 2 við fjárhagsáætlun 2024 vegna hækkunar á kostnaði hjá Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps.  
  2. Fjárhagsáætlun fyrir árin 2025 til 2028.  Setja inn helstu tölur varðandi kostnað af framkvæmdum o.fl.  Fyrri umræða.
  3. Fundargerð fundar byggingar- og skipulagsnefndar og skipulagsfulltrúa frá 19.nóvember s.l. tekin til umræðu og afgreiðslu.
  4. Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Vestfjörðum 2024 til 2035.  Hreppsnefnd tekur fyrirliggjandi svæðisáætlun til efnislegrar umræðu.
  5. Tölvupóstur frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga varðandi skipan áheyrnarfulltrúa í stjórn sambandsins.  
  6. Kræklingarækt á Vestfjörðum.  Oddviti fer yfir málið.
  7. Bréf frá Þjóðskjalasafni Íslands varðandi varðveislu rafrænna gagna.

Norðurfirði 25. nóvember 2024,
Eva Sigurbjörnsdóttir 
oddviti Árneshrepps. 


Comments

Skildu eftir svar

Discover more from Árneshreppur

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading