Frá og með 1. júlí tók Ida Bergit Rognsvåg dýralæknir við öllum rekstri dýralæknastofunnar og Gísli Sv. Halldórsson fer á eftirlaun. Það er mikið gleðiefni að jafn hæfur og metnaðarfullur dýralæknir taki við. Ida er nú þegar búin að vera starfandi á stofunni í 9 mánuði auk þess að hafa starfað í Noregi í marga mánuði. Hún er því orðin vel inni í öllum aðstæðum á svæðinu öllu.
Í stórum dráttum verður starfsemin óbreytt, en þjónustan mun verða aukin þar sem þegar hafa verið fest kaup á ýmsum tækjum og tólum. Ber þar fyrst að nefna sónar, laser, tannhreinsun og ný og fullkomin blóðgreiningartæki.
Aðsetur dýralæknisþjónustunnar verður áfram að Ægisbraut 19 í Búðardal eins og verið hefur sl. 65 ár.
Símatími þjónustudýralæknis verður eftir sem áður milli klukkan 9:00 og 11:00 alla virka daga og neyðarþjónusta utan þess tíma í síma 434 1122.
Athugið að númerið er ávallt áframsent í farsíma þess dýralæknis sem er á vakt hverju sinni.


Leave a Reply