Fundur er boðaður í hreppsnefnd Árneshrepps föstudaginn 15. desember 2023 kl.14:00. Fundurinn verður haldinn á skrifstofu hreppsins í Norðurfirði.
Dagskrá fundarins;
- Fjárhagsáætlun 2024 til 2027, síðari umræða.
- Sameiningarviðræður sveitarfélaga, umsögn frá Innviðaráðuneyti. Lagt fram til kynningar og umræðu.
- Byggðakvóti, sækja þarf um undanþágu á vinnslu. Lagt fram til umræðu.
- Þjóðlendumál, bréf frá Óbyggðanefnd, lagt fram til kynningar og umræðu.
- Umhverfisstofnun, reglubundið eftirlit með móttöku úrgangs og farmleifa frá skipum hjá Norðurfjarðarhöfn.
- Bréf frá Innviðaráðuneyti varðandi lögbundnar nefndir í sveitarfélögum vegna fyrirspurnar á Alþingi.
- Bréf frá Fjarskiptastofu, skráning fjarskiptafyrirtækis; Ljósleiðari Árneshrepps.
- Félagsheimilið Árnesi, tryggingamál, hugsanlegar breytingar.
Norðurfirði 12. desember 2023,
Eva Sigurbjörnsdóttir
oddviti Árneshrepps.


Leave a Reply